25. júní 2007 klukkan 23:03
Afrakstur seinasta mánuðar liggur fyrir. Ég safnaði skeggi í mánuð og rakaði mig í dag. Afraksturinn vóg 1,283g og var svartleitur mjög.
Nú er hellingur af hlutum búið að vera síðan bloggað var hér seinast og er því tímabært að gera elsendum grein fyrir þeim. Prófin kláruðust um miðjan Maí og gekk það bara nokkuð vel, féll allavega ekki í neinu, fékk ekkert voða hátt í leiðinlegu fögunum en gekk mjög vel í skemmtilegu fögunum. Flott að vera búinn með 1/3 af B.S náminu. Eftir próf tók svo við taumlaust ekkibindindi og almennur hressleiki. Eftir nokkra daga af því var komið að því að byrja að vinna fyrir sér. Ég var nokkuð heppinn, held ég, að fá vinnu á Efnagreiningarsetri Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands hjá Dr Sigurði V. Smárasyni. Ég vissi ekkert hvað ég var að fara vinna við og var það sérstök tilfinning. Ég vissi ekki hvort ég var að fara að vinna við að vaska upp tilraunaglös eða hvort ég átti að vinna við 30-miljón króna tæki. Það reyndist vera hið síðara. Þegar í vinnuna var komið og sýnisferðinni um húsakynin var lokið, þá var mér vísað inn í herbergi í kjallaranum og sagt að fikta í tækjunum sem þar voru. Ég gerði það samviskusamlega og hafði gaman af. Svo næsta dag komst ég að því að ég hafði verið að fikta í tækjum sem eru dýrari en lítil flugvél. En fyrstu dagarnir gegnu nú stórslisa laust. Erviðast var þó að átta sig á í hverju starfið sem ég var ráðinn til að sinna virkilega fólst, en ég held að ég sé kominn með það á nokkuð hreint. Í staðinn fyrir að reina að gefa starfinu eitthvað nafn skal ég bara segja hvað ég er búinn að vara að gera og þið getið ákveðið eitthvað nafn.
Fyrsta verkefnið var að við fengum í hendur tvær krukkur með sólarvörn fyrir karlmenn frá ónefndum snyrtivöruframleiðanda. Þessi snyrtivöruframleiðandi hafði sem sagt búið til uppskryft að sólarvanrakresmi fyrir karlmenn og hafði svo sent hana til Kína annarsvegar og til USA hinsvegar og látið einhverjar verksmyðjur búa til efnið. Snyrtivöruframleiðandinn vildi svo vita hvort verksmiðjurnar væru í raun og veru að vinna eftir uppskriftinni sem þeim var gefinn, þ.e hvort verksmiðjurnar væru nokkuð að reyna að svindla á þeim. Þetta er búið að vera fínnt verkefni og er margt skemmtilegt búið að uppgötva.
Annað verkefnið var þannig að einhver lyfjafræðingur bjó til eitthvað lyf sem á að vinna gegn einhverjum augnsjúkdómi. Þessi gaur sprautaði svo lyfinu í rottur sem var svo slátrað eftir tvo daga. Við fengum svo send 20 rottuaugu og áttum að efnagreina þau til þess að sjá hvort lyfið hafi skilað sér til augnanna og þá í hversu mikklu magni. Ég fékk það hlutverk að stappa rottuaugun. Geðslegt það.
Svo eru fleiri háleinileg verkefni í burðarliðnum sem ég má ekki tala um.
Þetta var nú fyrsti partur af löngum bloggum framundan þar sem það er langt um liðið síðan bloggað var seinast. Meðal þess sem koma skal í næstu bloggum eru: 16 júní í orðum (kominn í myndum að hluta til ), Air tónleikar, skeggræður, hlutgervingar, myndir, slúður um fræga fólkið í hollíwood og margt fleira svo stei túned. Já svo ákvað ég að setja inn svona best of seríu af honum frímanni.
Afrakstur
Afrakstur seinasta mánuðar liggur fyrir. Ég safnaði skeggi í mánuð og rakaði mig í dag. Afraksturinn vóg 1,283g og var svartleitur mjög.
Nú er hellingur af hlutum búið að vera síðan bloggað var hér seinast og er því tímabært að gera elsendum grein fyrir þeim. Prófin kláruðust um miðjan Maí og gekk það bara nokkuð vel, féll allavega ekki í neinu, fékk ekkert voða hátt í leiðinlegu fögunum en gekk mjög vel í skemmtilegu fögunum. Flott að vera búinn með 1/3 af B.S náminu. Eftir próf tók svo við taumlaust ekkibindindi og almennur hressleiki. Eftir nokkra daga af því var komið að því að byrja að vinna fyrir sér. Ég var nokkuð heppinn, held ég, að fá vinnu á Efnagreiningarsetri Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands hjá Dr Sigurði V. Smárasyni. Ég vissi ekkert hvað ég var að fara vinna við og var það sérstök tilfinning. Ég vissi ekki hvort ég var að fara að vinna við að vaska upp tilraunaglös eða hvort ég átti að vinna við 30-miljón króna tæki. Það reyndist vera hið síðara. Þegar í vinnuna var komið og sýnisferðinni um húsakynin var lokið, þá var mér vísað inn í herbergi í kjallaranum og sagt að fikta í tækjunum sem þar voru. Ég gerði það samviskusamlega og hafði gaman af. Svo næsta dag komst ég að því að ég hafði verið að fikta í tækjum sem eru dýrari en lítil flugvél. En fyrstu dagarnir gegnu nú stórslisa laust. Erviðast var þó að átta sig á í hverju starfið sem ég var ráðinn til að sinna virkilega fólst, en ég held að ég sé kominn með það á nokkuð hreint. Í staðinn fyrir að reina að gefa starfinu eitthvað nafn skal ég bara segja hvað ég er búinn að vara að gera og þið getið ákveðið eitthvað nafn.
Fyrsta verkefnið var að við fengum í hendur tvær krukkur með sólarvörn fyrir karlmenn frá ónefndum snyrtivöruframleiðanda. Þessi snyrtivöruframleiðandi hafði sem sagt búið til uppskryft að sólarvanrakresmi fyrir karlmenn og hafði svo sent hana til Kína annarsvegar og til USA hinsvegar og látið einhverjar verksmyðjur búa til efnið. Snyrtivöruframleiðandinn vildi svo vita hvort verksmiðjurnar væru í raun og veru að vinna eftir uppskriftinni sem þeim var gefinn, þ.e hvort verksmiðjurnar væru nokkuð að reyna að svindla á þeim. Þetta er búið að vera fínnt verkefni og er margt skemmtilegt búið að uppgötva.
Annað verkefnið var þannig að einhver lyfjafræðingur bjó til eitthvað lyf sem á að vinna gegn einhverjum augnsjúkdómi. Þessi gaur sprautaði svo lyfinu í rottur sem var svo slátrað eftir tvo daga. Við fengum svo send 20 rottuaugu og áttum að efnagreina þau til þess að sjá hvort lyfið hafi skilað sér til augnanna og þá í hversu mikklu magni. Ég fékk það hlutverk að stappa rottuaugun. Geðslegt það.
Svo eru fleiri háleinileg verkefni í burðarliðnum sem ég má ekki tala um.
Þetta var nú fyrsti partur af löngum bloggum framundan þar sem það er langt um liðið síðan bloggað var seinast. Meðal þess sem koma skal í næstu bloggum eru: 16 júní í orðum (kominn í myndum að hluta til ), Air tónleikar, skeggræður, hlutgervingar, myndir, slúður um fræga fólkið í hollíwood og margt fleira svo stei túned.